Klukkan

Auglýsing

Könnun

Hvort er mannshvolpurinn?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

3 vikna

12. maí 2010 klukkan 23:13
Nokkrar myndir af 3 vikna skvísunum:


Millý


Mollý


Mandý
Ásta María Guðbergsdóttir
2 athugasemdir

Opin augu

07. maí 2010 klukkan 23:55
Nú eru skvísurnar orðnar 16 daga gamlar og búnar að opna augun, þær dafna bara ótrúlega vel og eru hver annarri sætari :)



Millý 10 daga


Mollý 10 daga


Mandý 10 daga


Awwww


Millý 16 daga


Mollý 16 daga


Oh þessar myndatökur....


Mandý 16 daga gömul

Hélt ég hefði líka verið með geispumynd af Mollý en það var greinilega ekki...


Ásta María Guðbergsdóttir
3 athugasemdir

Keisaraynjurnar

27. apríl 2010 klukkan 21:45
Trillurnar þrjár Millý, Mollý og Mandý komu í heiminn eftir keisaraskurð þar sem dáinn bróðir þeirra var neðstur og stíflaði útgönguleiðina, það var mjög leiðinlegt að hann virtist bara vera tiltölulega nýdáinn og ekki vitað hvað olli en dýralæknarnir segja sennilega súrefnisskortur :( En eftir smá basl í byrjun gengur nú allt vel og þær gráðugu systur þyngjast jafnt og þétt. Þær verða vikugamlar á morgun.

Hér koma nokkrar myndir


Hérna eru skvísurnar nýkomnar heim og mamman að þrífa


Millý sem fæddist 130 gr


Mollý sem fæddist 120 gr


Mandý fæddist 120 gr


Millý 5 daga


Mollý 5 daga


Mandý 5 daga

Og svo tvær af pabbanum Royal Ice Magic "Alex"






Hann er 11 mánaða á þessum myndum á hundasýningu...

Ásta María Guðbergsdóttir
3 athugasemdir

Tvö ný got!!!

27. apríl 2010 klukkan 20:40
Vá orðið svo langt síðan ég henti einhverju hér inn að ég gleymdi slóðinni í eitt andartak! Vonandi eru einhverjir sem nenna enn að kíkja hér inn svo þið megið endilega skilja eftir kveðju ef svo er ;)

En ég hef sem sagt ekkert bloggað um gotið hjá Amber og Erró en þann 21. febrúar fæddust tík og rakki og svo tveimur mánuðum seinna, 21 apríl, eignaðist Minnie þrjár tíkur með Alex.

Ég ætla að byrja á því að setja inn nokkrar myndir af Monroe og Nóa og svo set ég inn myndir og fréttir af nýja gotinu í annarri færslu :)


Nói 8 daga gamall


Monroe 8 daga gömul


Systkinin 2 vikna


Awwww


Nói, 3 vikna


Monroe 3 vikna


Nói, 4 vikna og 3 daga


Monroe, 4 vikna og 3 daga


Monroe 6 vikna


Nói 6 vikna




Monroe, 7 vikna




Nói 7 vikna

Ásta María Guðbergsdóttir
6 athugasemdir

Rómeó, Lipurtá og Nala

13. janúar 2010 klukkan 01:41
Þá eru hvolpakrílin orðin 9 vikna og öll komin með nöfn frá nýju eigendunum.

Yoko heitir núna Nala:


Hún ætlar að verða nágranni pabba síns á völlunum í Hafnafirði hjá Dagnýju og fjölskyldu :)

Þetta svo Lipurtá litla:


Lipurtá mun búa hjá Diljá og fjölskyldu í Kópavoginum

Rómeó fékk nú nafnið sitt eiginlega bara strax:

Hann ætlar að flytja í Grafarvoginn til Arndísar og fjölskyldu

Nú eru þau orðin algjörir grallaraspóar og er dótið hennar Karlottu alltaf vinsælt, hokus pokus stóllinn er rosa skemmtilegur enda með alls konar götum og dóti. Nýjasta æðið hjá Rómeó er reyndar að hoppa upp í stólinn sjálfan og upp á borðið og svona eins og hér má sjá:


Karlottu finnst þessir hvolpar líka ótrúlega skemmtilegir og sætir og skríkir alveg yfir þeim!

Ásta María Guðbergsdóttir
4 athugasemdir

Nýjar myndir!

29. desember 2009 klukkan 01:38
Loksins nýjar myndir, ég skammast mín svo fyrir hvað ég er búin að vera léleg að setja inn myndir og fréttir af þessum dúllum sem nú eru orðnar 7 vikna síðan síðasta föstudag!  Ég tók reyndar myndir af þeim uppstilltum rétt fyrir jól en það tókst ekki betur en svo að þegar ég ætlaði svo að fara að setja þær inn á bloggið uppgötvaði ég að það vantaði uppstillimynd af Yoko. Hún var svo óþekk að ég ákvað að geyma hana þar til síðast en gleymdi henni svo! Embarassed

Ég á reyndar hausmyndir af þeim síðan þau voru 6 vikna sem koma hér:


Yoko


Whitney


Romeo

Svo eru það myndirnar sem ég tók áðan, s.s rúmlega 7 vikna:

Yoko:




Whitney "gíraffi":




Romeo:




Annars gengur bara rosa vel með þau. Þau eru dugleg að fara út en finnst svolítið kalt eftir að allur snjórinn kom. Yoko og Romeo eru algjörir hlunkar! Og þau leika öll rosa mikið, þegar þau verða búin á því skríða þau annað hvort inn í húsið sitt eða undir göngugrindina hennar Karlottu. Þau eru reyndar nýtekin á því að biðja um að fá að koma upp í sófa með smá frekjugangi og finnst voða gott að kúra þar.

Þarf svo líka að setja inn nýjar myndir af hvolpunum hennar Minnie fljótlega þau eru öll rosa sæt :) Minnie er líka orðin eins og hvolpur sjálf fyrir utan eyrnahárin, en hún er sköllótt beinlínis á búkinn og með heil tvö-þrjú hár á skottinu hehe.
Ásta María Guðbergsdóttir
7 athugasemdir

Hvolparnir orðnir 4 vikna

06. desember 2009 klukkan 22:08
Hvolpabollurnar eru orðnar 4 vikna gamlar og ég náði ekki að henda inn myndum áður en ég fór út, ég var samt búin að taka þær og koma þeim í tölvu en á þeim myndum eru hvolparnir 3 vikna mínus 1 dagur. Ég ætla því að setja þær inn núna ásamt nýjum myndum :)


Yoko, 3 vikna


Yoko, 4 vikna


Whitney, 3 vikna


Whitney, 4 vikna


Romeo (eða Rómeó-gleymdi að spurja hvernig það ætti að vera skrifað) , 3 vikna


Og aftur 4 vikna...


Systkinin, 4 vikna

Svo verð ég nú að setja inn smá mont hérna en Phoebe okkar varð stigahæsti papillon ársins á Íslandi og var heiðruð á fiðrildajólunum á síðustu helgi. Tveir synir hennar voru einnig á lista en það voru þeir Icarus í þriðja sæti og Patti í fjórða sæti :) Við erum að sjálfsögðu mjög ánægðar.


Prinsessan með verðlaunin sín :)



Ásta María Guðbergsdóttir
4 athugasemdir

2 vikna

22. nóvember 2009 klukkan 01:47
Þá eru hvolpakrílin orðin 2 vikna og halda áfram að blása út hehe. Þau lifa svo notalegu lífi að tíkurnar eru ekki einu sinni farnar að hafa fyrir því að reyna að opna augun en Rómeo litli er nú aðeins farinn að leyfa okkur að sjá í sín :)

Hérna er Yoko, 15 daga gömul:



Og Whitney, 15 daga:



Og að lokum prinsinn hann Rómeo:

Ásta María Guðbergsdóttir
Engin athugasemd

Bollubörnin

17. nóvember 2009 klukkan 01:29
Það er víst löngu kominn tími til að setja inn smá fréttir og myndir af rjómabollubörnunum. En þar sem allt er á fullu í undirbúningi á nýju hundasnyrtistofunni sem ég er að fara að opna ásamt Sóley hundasnyrti þá er afskaplega lítill tími aflögu því miður.

En þau dafna sko aldeilis vel hvolpakrílin og ég held það hafi engir af okkar hvolpum verið svona feit síðan Þruma Þöll var í gotkassanum!

En ég tók myndir af þeim 5 og 9 daga gömlum og svo eru þau öll komin með nöfn :) Það var ekki erfitt að finna þema fyrir þetta got þar sem ástarenglarnir foreldrarnir heita Hálsakots Finding Hot Love og Englakots Angel of Love...segir sig bara sjálft hvað þemað átti að vera Wink

Hérna er hún Hálsakots Love Me Do "Yoko", 5 daga:

Og svo 9 daga:


Einkaprinsinn Hálsakots Love Me Tender "Elvis", 5 daga:

Og 9 daga:


Og að lokum seinni prinsessan, Hálsakots Love Me Like You Do "Whitney", 5 daga:

Og 9 daga:


Af Múslu er allt gott að frétta, það er orðið ákveðið að hún verði sænsk prinsessa en hún verður samt áfram hér á landi fram á næsta vor eða sumar. Úff það verður erfitt að láta hana frá sér eftir það enda er hún stórskemmtilegur karakter og algjör músla...hún ber sko nafn með rentu :)
Hér er ný mynd tekin af skvísunni í gær:



Nætí næt...

Ásta María Guðbergsdóttir
7 athugasemdir

Nýjir hvolpar

08. nóvember 2009 klukkan 01:47
Í gærkvöldi átti Thalia hvolpana sína þrjá, tvær tíkur og einn rakka. Þeir komu með allir með ca. klukkutíma á milli og gekk þetta bara mjög vel. Fyrsti sólarhringurinn hefur líka gengið mjög vel og hafa meira að segja allir hvolparnir þyngst þó það sé mjög algengt að þeir léttist fyrstu tvo sólarhringana.  Stoltur pabbinn er Picasso eða Englakots Angel of Love.


Thalia með börnin sín


Önnur tíkin og rakkinn eru með skemmtilega sérstakar blesur

Og fyrsta tíkin var með svona blett á mallanum! Þetta hef ég aldrei séð áður :)


Svo koma hér andlitsmyndir:

Fyrri tíkin


Seinni tíkin


Rakkinn



Picasso, pabbinn


Thalia, mamman
Ásta María Guðbergsdóttir
8 athugasemdir